11.12.2006 02:15:28 / Baldur

Jólahlaðborð Hraðbrautar

Ég hef ekki skrifað neitt hérna í marga mánuði, enda er skólinn búinn að vera herfilegur- en núna er ég mættur aftur (?).

..?

Ekki er ennþá búið að halda upp á afmælið mitt (29. sept), en ég geri það líklega á næsta ári. En ég er búinn með öll prófin, náði þeim og alles þannig ég er bara kominn í jólafrí. :)

Svona er ég glaður. :haha:

Í kvöld var ég á jólahlaðborðinu hjá Hraðbraut og það var æðislegt! Við borðuðum svkalaega góðan mat, ég spilaði ég eitthvað og það voru nokkur skemmtiatriði og svo var dansað í svona 2 tíma. Já, það er sko ekki slegið við slöku þegar böll eru haldin hjá Hraðbraut (þ.e.a.s. þegar þau eru haldin :S). En núna er það eina sem ég þarf að hafa áhyggjur af er að læra eitthvað lag fyrir jólatóleikana hjá Maríu og að kaupa jólagjafir (og að kaupa Wii sem kemur út 14.!).

Peach out (...:|)

-Baldur


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 22:38:01 / Baldur

Kennsla

20. september kenndi ég Ensku við gamla skólann minn (Hvassaleitisskóla) með Hafliða, var svona eiginlega aðstoðarkennari en það var oft sem hann skildi mig eftir í svona 25-30 mínútur. 8) I'm a big boy.

Við sóttum fyrst 5. bekk út þar sem krakkarnir gengu inn í röð ("verið glöð í röð" sagði Hafliði þegar krakkarnir voru eitthvað í fýlu ;) týpískt fyrir hann) og svo þegar við fórum inní stofuna byrjuðu krakkarnir að telja upp enska liti; bláan, gulan, rauðan osfv. Ekkert sérstaklega gaman fyrir mig nema að eftir það fékk ég að ýta á "play" og "pause" takkann á einhverri hlustunar-æfingu sem krakkarnir voru að hlusta á.

Ég klúðraði því algjörlega. :( Eða svoleiðis, spólaði óvart á byrjunina á diskinum..

Svo kenndi ég 8. bekk, sem var mikið skemmtilegara. Þau voru að vinna í einhverju verkefni sem hét SRA og á meðan átti ég að sitja yfir þeim, og eftir það kenndi ég þeim smá í fleirtöluendingum enskra orða af latneskum uppruna, óþarfi að segja að það hafi verið við gífulegar og sterkar undirtektir. :|

Að því loknu kenndi ég 6. bekk sem var bara mjög fínn, ég átti að kenna þeim regluna hvenær maður notar "have" og "has" sem ég kunni náttúruleg ekki, en ég náði að draga það uppúr mér, ég lærði enskuna aðalega í gegnum nefið þannig að ég kann ekki of mikið af svona reglum, svo áttu krakkanir að búa til setningar með orðunum, hérna eru nokkur dæmi:

  • Do you have a toilet on your head?
  • I have toilet. [sic]
  • I am a toilet.
  • He has a toilet on his head.
  • I drink toilets.

Þessir krakkar! :evil:

Eftir hvern einasta tíma (ég var þarna frá klukkan 8:00 til 13:00) fór ég á kennarastofuna og talaði við gömlu kennarana mína, og einhver spurði mig hvort ég hafi skemmt mér svo vel í skólanum þegar ég var yngri að ég hafi ákveðið að koma aftur, þá sagði ég bara að það hafi ekki verið eins skemmtilegt að fá prik fyrir að skila ekki enskustílum eins og að sitja á kennarastofunni borðandi nammi :D (líffræði kennarinn Sigrún var nýkomin frá Þýskalandi, þannig að það var nammi í boði :haha: ).

Ætla ég að verða enskukennari? Nei, ég held ekki. :S En þetta var samt svakalega skemmtilegt, og gaman að kynnast svona mismunandi hlutum þótt maður ætli ekkert að gera þá að atvinnu sinni.

-Baldur


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 01:21:22 / Baldur

Nox Mangæ

Mangakvöld, nox mangæ, manga no yoru...

Fyrst vil ég benda á að ég er búinn að setja inn tvær (:!: ) nýjar myndasíður:

Já, við horfðum á samtals 7 DVD diska á mangakvöldinu,

  • 5 anime DVD sem hver hafði um 4-5 þætti, uþb. 20 mínútur hver, samtals um 6 klst og 40 mín
  • 1 Final Fantasy mynd sem var 1 tímar og 41 mín
  • og að lokum 1 Monty Python mynd sem var 1 tími og 25 mín

Samtals: Um það bil 9 klukkustundir og 26 mínútur.

..vá.. ég hef of lítið að gera

Endilega bætiðið við athugasemdum. :$

-Baldur

Ps. Ég fór yfir þetta og þetta var nær 9 klst og 46 mínútum. :S


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 00:25:14 / Baldur

Íranskur matur og brúðkaup

Prófavika í næstu viku.. Já, hlutirnir ganga víst hratt fyrir sig í Hraðbraut :S hverjum hefði dottið það í hug?

Um fimmtudagskvöldið átti ég að læra undir loka stærðfræðiprófið, en ég ákvað að fara út að ganga með Andra í staðin og við gengum í góða 3-4 tíma, í kulda og rigningu.

Svo var ég líka dreginn í matarboð um föstudagskvöld, sem var reyndar frábærlega skemmtilegt. Þarna voru 7-8 manns, við borðuðum íranskan mat og hann var bara mjög góður. Það var fullt af svakalega fyndnu fólki þarna; frændsystkin frá Íran, svona 25 ára maður sem hét Baldur (leyst bara vel á hann ;)), sonur eins mannsinns frá Íran sem var 15 ára ef ég man rétt og með hár sem var örugglega 55 cm (og mjög vel hirt), mamma og Vala -vinkona hennar (Sandra Seidenfaden og María píanókennarinn minn vita hvernig brjóstahaldarinn hennar var á litinn af einhverri ástæðu 8|) og að lokum var ég auðvitað líka þarna. Ég mun líklega setja inn nokkrar myndir frá þessu, náðum líka nokkrum æðislegum myndum. Það var líka frábært matur. :haha:

Og að öðru, bróðir minn Davíð var að giftast kærustu sinni til margra ára og barnsmóður (Kristínu) um síðustu helgi :D- og þýsk hjón sem þekkja Davíð komu til Íslands til að mæta í athöfnina og þau gistu hjá okkur Pabba í 10 daga (fara á sunnudaginn). Þau heita Wolfgang og Ingrid og eru alveg frábær, Wolfgang er mjög góður líka að spila á píanó mikið betri en ég, og það hefur verið mjög gaman að hlusta á hann spila. Enn og aftur, þá set ég einhverjar myndir af þessu seinna. :whut: Þetta er byrjað að hlaðast upp hjá mér..

-Baldur


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 10:15:18 / Baldur

Spilerí

Jamm, spilerí.

Spilaði eitthvað í Iðnó á Menningarnótt, myndir og ítarefni er hægt að finna  í "Iðnó" undir "Myndir".

Það heppnaðist bara mjög vel.. fyrir utan 2 stórar villur og margar litlar. Reyndar heppnaðist það ekkert svo æðislega, en þetta var fínt. :frown:

Flygillinn var samt sérstakur.. Þegar ég var að prufa pedalana áður en ég byrjaði að spila (bara að sjá hvort þeir séu stífir eða tregir) þá tók ég eftir því að í hver sinn sem ég ýtti á una corda þá færðust nóturnar um 1-3 cm til vinstri:!:
Meira ruglið..

-Baldur


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 10:49:27 / Baldur

Iðnó, be there AND be square!

Jæja í dag klukkan 14:00 mun ég spila í Iðnó, dálítið stressaður.. :S En þetta heppnast vonandi vel,

-Baldur     


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 14:10:10 / Baldur

Hraðbraut, X-bekkingur

Jæja, ég er núna í Líffræði 103 tíma. Ég er kominn í X bekk, og á öðru (og síðasta) ári í Menntaskólanum Hraðbraut. :D Dálítið sérstök tilfinning að ég muni klára menntaskólann á næsta ári þann 07.07.07.

(mjög hughreystandi skilti frá Autobahn)

Síðan fæ ég að öllum líkindum gleraugun mín í dag og ég hlakka til að fá þau, ég hefði eiginlega átt að fá mér gleraugu fyrir allmörgum árum- en ég er svo latur. :S

Jæja, ég sendi bráðlega inn ferðasöguna frá Evrópuferðinni, og líklega einhverjar myndir af mér með gleraugunum.

-Baldur


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 21:04:52 / Baldur

Dansk für immer? Nein.

Jæja, núna eru prófin loksins búin. Eftir allt þetta puð, og loksins hálfnaður með menntaskóla! :D Og hvað gerist þá? Náttúrulega læsist ég úti, og með enga lykla... :whut: Jæja, pabbi kom eftir stuttan tíma (lesist: 30 mínútur) og reddaði mér inn. Og síðan fór hann bara strax aftur, farinn að hlaupa Fimmvörðuhálsinn og kemur aftur á sunnudagskvöld þannig að ég verð einn heima í tvo daga. Jibbí kóla! :D

En annars, var í dönsku 203 (btw, ég þarf aldrei að fara í dönsku aftur á ævinni minni) og þýsku 203, fór síðan í píanó tíma (og gerði reyndar allt annað en að spila þar). DS Lite er ekki ennþá komin í búðir, kemur líklega eftir u.þ.b. eina viku; ætli maður geti ekki beðið? :cry:

En já, skólinn búinn, einn heima; og ekkert framundan. Það verður þægilegt að slappa af og njóta þess að aðeins eitt ár sé eftir af menntaskólanum. 8)

-Baldur


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 20:49:00 / Baldur

Piano = Penge :P

Einhverntíman um 16. maí var mér boðið að spila (á píanó :|) undir á meðan fólk var að koma sér fyrir, á einhverjum fundi hjá FÍ (ferðafélagi íslands); og núna um mánuði síðar gaf tóku þau við reikningi sem hljóðaði uppá 15.000 krónur íslenskar. :D Jíbbí kóla!

Þetta er bara mjög gott tímakaup (enda spilaði ég varla lengur en 20 mínútur) og ég er bara hæst ánægður með þetta. Og síðan er þetta auðvitað svakalega skemmtilegt, þ.e.a. spila fyrir framan fólk. Ég væri endilega til í að gera þetta aftur, auðvitað ef einhver annar vill fá mig.. :whut:

23. júní kemur DS Lite út, og ég ætla að fá mér svarta (mun passa vel við sálina mína) :D (og fyrir þá sem vita ekki hvað það er, þá er ykkur líklega sama :haha: ). Ég ætla örugglega að fá mér New Super Mario Bros. og líklega Castlevania.

 

Síðan uppfærði ég myndir af mér, og má nálgast þær undir krækjunni "Ocarina"; ég hef engar glæ-nýjar myndir af mér enda væru þær allar myndir af mér lesandi bækur og lærandi. Já þið giskuðuð rétt, ég er ennþá að læra og ennþá í skólanum. Úff.. 8|

En ég verð bara að taka þessu cool 8), eins og Fonzie. Aayy! ;)

Baldur.Talk.Grettings.Bye();


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 09:05:20 / Baldur

Próf eftir 4 tíma.

Já, ég er ennþá í prófum.
Eftir 4 tíma verð ég í skólanum að undirbúa mig undir dönsku próf. Eftir það vantar vonandi bara eitt próf uppá það að ég sé hálfnaður með menntaskólann; og ef allt gengur vel fer ég á næsta ári til Japan.

En já, ég fer líklega að uppfæra einhverjar myndir af mér seinna.

-Baldur


» 4 hafa sagt sína skoðun